7. maí 2019
7. maí 2019
Brjóstapúðar áfram til skoðunar
Embætti landlæknis og Lyfjastofnun fylgjast með alþjóðlegri umfjöllun um brjóstapúða af ákveðinni gerð, vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein.
Embætti landlæknis og Lyfjastofnun fylgjast með alþjóðlegri umfjöllun um brjóstapúða af ákveðinni gerð, vegna tengsla þeirra við sjaldgæft eitilfrumukrabbamein (BIA-ALCL; breast implant-associated anaplastic large cell lymphoma). Púðarnir sem sjónir hafa einkum beinst að eru með hrjúfu yfirborði og framleiddir af lyfjafyrirtækinu Allergan. Hætt var að selja þessa púða í Evrópu í lok síðasta árs, líkt og fram kom í tilkynningu frá Lyfjastofnun í desember síðastliðnum.
Umræddir púðar voru notaðir hér á landi á árunum 2007 – 2015 en innflutningi þeirra var hætt um mitt ár 2015. Talið er að á þessu árabili hafi um 470 konur hérlendis fengið þessa tegund brjóstapúða ígrædda. Eitilfrumukrabbamein tengt brjóstapúðum er afar sjaldgæft og engin dæmi þess hérlendis.
Ekki er talin þörf á að grípa til sérstakra aðgerða vegna þeirra kvenna sem eru með þessa brjóstapúða. Um þetta eru alþjóðlegar stofnanir og sérfræðingar sammála í ljósi þess að meinið er sjaldgæft og einkenni þess afgerandi.
Franska lyfjastofnunin tilkynnti 4. apríl síðastliðinn að í Frakklandi megi ekki lengur nota tilteknar tegundir brjóstapúða með hrjúfu yfirborði af grófustu gerð. Aðrar þjóðir hafa ekki talið ástæðu til slíks banns, hvorki í Evrópu né annars staðar á Vesturlöndum. Púðarnir frá Allergan eru enn á markaði í löndum utan Evrópu, meðal annars í Bandaríkjunum, Ástralíu og Kanada. Íslensk heilbrigðisyfirvöld munu áfram fylgjast vel með faglegri umfjöllun heilbrigðisyfirvalda og eftirlitsaðila í Evrópu og víðar um þessi mál.
Vegna þessa máls hafa Embætti landlæknis og Lyfjastofnun tekið saman spurningar og svör með upplýsingum og fræðslu um eitilfrumukrabbamein tengt brjóstapúðum (BIA-ALCL).
Spurt og svarað
Ítarefni:
Lyfjastofnun: Allergan stöðvar sölu og innkallar óselda brjóstapúða
Lyfjastofnun: Franska lyfjastofnunin hvetur til varkárni við val á brjóstapúðum til ígræðslu
Nánari upplýsingar veita:
Alma D. Möller landlæknir, sími 5101900, netfang: mottaka@landlaeknir.is
Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar, sími 5202100, netfang: upplysingadeild@lyfjastofnun.is