Fara beint í efnið

2. nóvember 2021

Breytingar á vinnustöðum eftir Covid 19 - morgunfundur

Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi þriðjudaginn 9. nóvember. Umfjöllunarefni fundarins er breytingar á vinnustöðum eftir Covid 19.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis, VIRK og Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi þriðjudaginn 9. nóvember kl. 9.00-10:00 - sjá viðburðinn á Facebook.

Umfjöllunarefni fundarins er breytingar á vinnustöðum eftir Covid 19 og aðalfyrirlesari verður Lisa Vivoli Straume forstöðukona og stofnandi MIND í Noregi.

Morgunfundurinn, sem verður í streymi á vefsíðum stofnananna þriggja, er sá áttundi í fundaröðinni um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi embættis landlæknis, VIRK og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.