Fara beint í efnið

22. febrúar 2021

Bólusetningar við COVID-19 í viku 8, 22. – 28. febrúar

Í viku 8, 22. – 28. febrúar verða tæplega 6 þúsund einstaklingar bólusettir. Samtals 3510 skömmtum af bóluefni frá Pfizer verður dreift um landið. Um 2200 einstaklingar fá bólusetningu 2 en 1300 fá fyrri bólusetningu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í viku 8, 22. – 28. febrúar verða tæplega 6 þúsund einstaklingar bólusettir.

Samtals 3510 skömmtum af bóluefni frá Pfizer verður dreift um landið. Um 2200 einstaklingar fá bólusetningu 2, en 1300 fá fyrri bólusetningu. Í þessum hópum eru bæði aldraðir og starfsmenn heilbrigðisstofnana.

2400 skömmtum af bóluefni frá AstraZeneca verður dreift um allt land og verður haldið áfram að bólusetja starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila.

 Sóttvarnalæknir