Fara beint í efnið

17. september 2020

Bóluefni gegn árlegri inflúensu 2020/2021 verður tilbúið til afhendingar í byrjun október nk.

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Distica hf. í byrjun október næstkomandi.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Distica hf. í byrjun október næstkomandi.

Í ár verður notað fjórgilda bóluefnið Vaxigrip Tetra sem inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og tveimur stofnum af inflúensu B.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

  • Þungaðar konur.

Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.

Um 70.000 skammtar af bóluefninu eru tilbúnir til afhendingar sem er svipað magn og var til ráðstöfunar á síðasta vetri. Dreifing bóluefnisins er ákvörðuð af sóttvarnalækni og miðast við dreifingu vetrarins 2019/2020 þar sem áhersla var lögð á bólusetningu áhættuhópa.

Auk ofangreinds þá verða 5.000 skammtar af bóluefninu Influvac tetra tilbúið til afgreiðslu 1. október nk. hjá Icepharma/Parlogis. Verð á því bóluefni er skv. Lyfjaverðskrá og ekki niðurgreitt af sóttvarnalækni.

Almenn bólusetning er í höndum heilsugæslunnar en auk þess er bólusett á sjúkrastofnunum og ýmis fyrirtæki og læknar hafa tekið að sér bólusetningu almennings og starfsmanna.

Þessir aðilar munu á næstunni auglýsa hvernig bólusetningunni verður háttað en yfirleitt er byrjað að bólusetja í október.

Eins og undanfarin ár er ekki nákvæmlega vitað á þessari stundu hvaða tegund inflúensu mun herja á landsmenn veturinn 2020 til 2021. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en venjulega má búast við henni í kringum áramótin.

Bólusetning gegn inflúensu veitir yfirleitt allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum en jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Sóttvarnalæknir