Fara beint í efnið

30. september 2020

Bóluefni gegn árlegri inflúensu

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Distica hf. frá 1. október.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Bóluefni gegn árlegri inflúensu er nú komið til landsins og verður tilbúið til afhendingar hjá Distica hf. frá 1. október en einhverja daga gæti tekið að koma því til allra aðila.

Í ár, verður notað bóluefnið, skv. samningi sóttvarnalæknis við Vistor, Vaxigrip Tetra sem inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og tveimur stofnum af inflúensu B.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningu:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Vakin er athygli á því að ofangreindir áhættuhópar eiga rétt á bóluefninu sér að kostnaðarlausu.

Um 70.000 skammtar af bóluefninu verða tilbúnir til afhendingar sem er svipað magn og var til ráðstöfunar á síðasta vetri. Dreifing bóluefnisins er ákvörðuð af sóttvarnalækni og er áhersla lögð á bólusetningu áhættuhópa. Dreifing fer fram í samræmi við lista sem er hjá Distica.

Almenn bólusetning er í höndum heilsugæslunnar en auk þess er bólusett á sjúkrastofnunum og ýmis fyrirtæki og læknar hafa tekið að sér bólusetningu almennings og starfsmanna.

Þessir aðilar munu á næstunni auglýsa hvernig bólusetningunni verður háttað.Eins og undanfarin ár er ekki nákvæmlega vitað á þessari stundu hvaða tegund inflúensu mun herja á landsmenn veturinn 2020 til 2021. Inflúensan er enn ekki farin að láta á sér kræla hér á landi en ávallt má búast við henni í kringum áramótin.

Bólusetning gegn inflúensu veitir yfirleitt allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum en jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Sjá nánar Dreifibréf nr. 3/2020 um bólusetningu gegn árlegri inflúensu.

Sóttvarnalæknir