Fara beint í efnið

31. janúar 2020

Aukavinningar dregnir út í verkefninu Tóbaks- og rafrettulaus bekkur

Dregnir hafa verið út aukavinningar í verkefninu Tóbaks- og rafrettulaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda í 7., 8., og 9. bekk á landinu. Að þessu sinni duttu tveir bekkir í lukkupottinn, Egilsstaðaskóli 9. FM og Grunnskóli Hornafjarðar 7. Bekkur.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Dregnir hafa verið út aukavinningar í verkefninu Tóbaks- og rafrettulaus bekkur sem fer fram árlega meðal nemenda í 7., 8., og 9. bekk á landinu.

Að þessu sinni duttu tveir bekkir í lukkupottinn, Egilsstaðaskóli 9. FM og Grunnskóli Hornafjarðar 7. Bekkur.

Nemendur vinningsbekkjanna og kennarar þeirra unnu húfur frá 66°Norður.Fleiri eiga möguleika á að vinna.

Annar útdráttur aukavinninga verður 25. mars 2020. Þá verða fleiri bekkir dregnir út sem fá 66°N húfur í verðlaun.

Sendið okkur undirritaðan samning og reglulegar staðfestingar. Við viljum hvetja alla bekki sem ekki hafa sent inn undirritaðan samning til að gera það sem fyrst. Við minnum einnig á að nauðsynlegt er að senda fimm sinnum yfir tímabilið staðfestingarnar á að bekkurinn sé tóbakslaus og rafrettulaus.