Fara beint í efnið

15. nóvember 2018

Auglýst starf sérfræðings á sviði sóttvarna

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða starfsmann til að starfa á sviði sóttvarna.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða starfsmann til að starfa á sviði sóttvarna. Starfið felur í sér vinnu við gagnagrunna sóttvarnalæknis og framsetningu og birtingu gagna. Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á almenna þekkingu í heilbrigðisfræðum, samskiptahæfni og fagmennsku. Næsti yfirmaður er sóttvarnalæknir en viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við teymi sérfræðinga í samræmi við lögbundna starfsemi sóttvarnalæknis samkvæmt sóttvarnalögum. Um er að ræða fullt starf en möguleiki er á hlutastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að gagnagrunnum sóttvarnalæknis og sóttvörnum, úrvinnsla gagna og birting þeirra

  • Samskipti við helstu aðila innanlands og erlendis um sóttvarnir

  • Önnur verkefni að beiðni sóttvarnalæknis

Hæfnikröfur

  • Menntun í heilbrigðisvísindum (læknisfræði, hjúkrun, lífeindafræði, lýðheilsufræðum, faraldsfræði) æskileg.

  • Reynsla af gagnavinnslu og birtingu gagna

  • Góð færni í að rita íslensku og ensku æskileg.

  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.

  • Starfsreynsla á sviði stjórnsýslu er kostur. 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Embættið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. 

Embætti landlæknis starfar í samræmi við lög um landlækni og lýðheilsu. Hlutverk embættisins í hnotskurn er að stuðla að góðri og öruggri heilbrigðisþjónustu, heilsueflingu og öflugum forvörnum.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 03.12.2018

Nánari upplýsingar veitir
Þórólfur Guðnason - thorolfur@landlaeknir.is - 510-1900