Fara beint í efnið

10. júlí 2019

Árétting vegna fréttaflutnings af smiti og smitleiðum E. coli sýkinga í Efstadal 2

Í fréttum og viðtölum við staðarhaldara á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í gær 9.7.2019 um smit og smitleiðir E. coli (STEC)

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í fréttum og viðtölum við staðarhaldara á ferðaþjónustubænum Efstadal 2 í gær 9.7.2019 um smit og smitleiðir E. coli (STEC) á bænum mátti skilja, að rannsóknarniðurstöður hafi sýnt að börnin sem sýktust á bænum hafi smitast vegna umgangs við kálfa en ekki af neyslu matvæla á bænum. Vegna þessa viljum við árétta eftirfarandi: 

  • Bakteríurannsóknir sýndu að kálfar á staðnum báru sömu bakteríur og sýktu börnin.

  • Helmingur barnanna hafði ekki verið í tengslum við kálfa á staðnum.

  • Það eina sem öll börnin níu áttu sameiginlegt var neysla íss í Efstadal 2 en tíunda barnið smitaðist af systkini.

  • Þær bakteríur sem sýktu börnin greindust með fundust ekki í ís á staðnum. Ísinn sem rannsakaður var, var hins vegar ekki sá sami og börnin höfðu borðað því ný framleiðsla var komin í sölu.

  • Fleiri bakteríurannsóknir standa nú yfir m.a. á starfsfólki staðarins. 

Af ofangreindu má því sjá að ekki er hægt að fullyrða að börnin hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.

Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast einmitt að því að rjúfa þessar smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti. Nánari upplýsingar um aðgerðir og ráðstafanir í Efstadal 2 má fá hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Matvælastofnun.

Sóttvarnalæknir hefur einnig sett sig í samband við Safetravel.is og Samtök ferðaþjónustunnar um að koma nauðsynlegum upplýsingum til ferðamanna sem heimsótt hafa Efstadal 2 og kunna að hafa smitast. Einnig hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) verið upplýst eins og alþjóðalög kveða á um.

Sóttvarnalæknir
Matvælastofnun
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands
Matís
Sýkla- og veirufræðideild Landspítala