Fara beint í efnið

27. ágúst 2021

Andlát vegna COVID-19

Í þessari viku hafa tveir látist af völdum COVID-19 á gjörgæsludeild Landspítala. Voru það erlendir ferðamenn í heimsókn á Íslandi.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í þessari viku hafa tveir látist af völdum COVID-19 á gjörgæsludeild Landspítala. Voru það erlendir ferðamenn í heimsókn á Íslandi. Annar þeirra var einstaklingur á sjötugsaldri, bólusettur og hinn á sextugsaldri, óbólusettur. Báðir höfðu þeir verið veikir með COVID-19 í a.m.k. tvær vikur fyrir andlát.

Það hafa því 32 einstaklingar látist af völdum COVID-19 á Íslandi frá upphafi faraldurs. Aðstandendum er vottuð samúð.

Sóttvarnalæknir