4. september 2018
4. september 2018
Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga þann 10. september.
Opið málþing og kyrrðarstundir verða í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga þann 10. september.
Í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga mánudaginn 10. september 2018 verður haldið málþing í húsnæði Decode við Sturlugötu 8, milli kl. 15:00 – 17:00 þar sem auk annarra áhugaverðra erinda verða kynntar niðurstöður kannana meðal framhaldsskólanema um sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir ungs fólks á Íslandi. Kyrrðarstundir verða einnig haldnar, á fimm stöðum á landinu, til að minnast þeirra sem hafa fallið fyrir eigin hendi.
Málþingið - Stöndum saman gegn sjálfsvígum
Fundarstjóri: Þorsteinn Guðmundsson, leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands
Dagskrá
15.00 Opnunarávarp
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
15.15 Sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir ungs fólks á Íslandi: Niðurstöður kannana meðal framhaldsskólanema frá 2000 til 2016.
Ingibjörgu Eva Þórisdóttur, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis.
15.40 Píeta samtökin: Fyrstu 6 mánuðirnir í móttöku og meðferð.
Edda Arndal, forstöðumaður Pieta á Íslandi.
16.00 Kaffi & kleinur.
16.15 Hugurinn þinn.
Alda Karen Hjaltalín, ráðgjafi og fyrirlesari í New York
17.00 Lok.
Kyrrðarstundir
Kyrrðarstundir til minningar um þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi verða í Dómkirkjunni, Akureyrarkirkju, Egilsstaðakirkju og Ísafjarðarkirkju að kvöldi mánudagsins 10. september og í Útskálakirkju að kvöldi sunnudagsins 9. september.
Dagskrá kyrrðarstundarinnar í Dómkirkjunni í Reykjavík 10. september kl. 20:00.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttur flytur hugvekju
Eyþór Ingi Gunnlaugsson flytur tónlistaratriði
Heiðrún Jensdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni
Jónas Þórir verður organisti
Í lok stundarinnar verður kveikt á kertum til að minnast ástvina sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Allir velkomnir
Eftirtaldir aðilar standa að dagskránni:
Embætti landlæknis
Geðhjálp
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Hugarafl
Landspítalinn - geðsvið
Minningarsjóður Orra Ómarssonar
Ný dögun, stuðningur í sorg
Pieta samtökin
Rauði krossinn
Þjóðkirkjan
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hvetur þjóðir heims til að efna til dagskrár í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga þann 10. september ár hvert. Þema dagsins að þessu sinni er Stöndum saman gegn sjálfsvígum og felur í sér hvatningu til samfélagsins í heild um að beita sér sameiginlega fyrir því að fækka sjálfsvígum.
Frekari upplýsingar veita:
Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri, svið eftirlits og gæða
salbjorg@landlaeknir.is sími: 862 8156
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir
gjgudlaugs@gmail.com
Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar
ago@gedhjalp.is