Fara beint í efnið

20. mars 2019

Alþjóðlegi hamingjudagurinn í dag

Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag 20. mars og er af því tilefni haldið málþing í hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 13:00 - 16:00 þar sem umfjöllunarefnið er Hamingja, heilsa og vellíðan - samfélagsleg ábyrgð? - Málþing um hamingju, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi vinnustaði og Heilsueflandi samfélag.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Alþjóðlegi hamingjudagurinn er í dag 20. mars og er af því tilefni haldið málþing í hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 13:00 - 16:00 þar sem umfjöllunarefnið er Hamingja, heilsa og vellíðan - samfélagsleg ábyrgð? - Málþing um hamingju, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, Heilsueflandi vinnustaði og Heilsueflandi samfélag.

Á málþinginu mun m.a. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis kynna nýjustu niðurstöður mælinga á hamingju Íslendinga og kynna í fyrsta sinn mælingar á hamingju eftir mánuðum ársins. Þá verða einnig kynntar nýjustu niðurstöður hamingjumælinga eftir sveitarfélögum og hamingju vinnandi fólks eftir starfsheiti og stöðu.

Dagskrá málþingsins

  • Ávarp Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

  • Hamingja og vellíðan í íslenskum sveitarfélögum og vinnustöðum Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá Embætti landlæknis og kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ.

  • Alþjóðlegi hamingjudagurinn og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna Harpa Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

  • A national and local strategy for getting happier together Dr. Ragnhild Bang Nes, prófessor við Oslóarháskóla og yfirsérfræðingur hjá Lýðheilsustofnun Noregs.

  • Þróun mælikvarða um hagsæld og lífsgæði Lárus Blöndal, ráðgjafi á sviði tölfræðiupplýsinga, forsætisráðuneyti.

  • Hamingja í Skútustaðahreppi Dagbjört Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur, Skútustaðahreppi.

  • Kaffihlé

  • Happiness as a skill: Building on human strengths and resources Dr. Lisa Vivoll Straume, Forstjóri Mind í Noregi.

  • VelVIRK í hamingju Ingibjörg Loftsdóttir, sviðsstjóri rýni, VIRK - starfsendurhæfingarsjóður.

  • Panelumræður

  • Málþingslok

Fundarstjóri Hlín Helga Guðlaugsdóttir

Allir eru velkomnir og þátttaka er án endurgjalds.

Streymi frá málþinginu 

Skipuleggjendur málþingsins, auk Embættis landlæknis eru: Forsætisráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntun Háskóla Íslands.

Dagurinn var fyrst haldinn að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna árið 2013 með það að markmiði að vekja athygli á hamingju og vellíðan sem mikilvægu markmiði fyrir einstaklinga og stjórnvöld um heim allan. Sjá https://www.dayofhappiness.net/#join

Nánari upplýsingar veitir:
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis
netfang: dora@landlaeknir.is