Fara beint í efnið

1. desember 2020

Áfram tafir á afgreiðslu mála hjá embætti landlæknis

Vegna margra fyrirspurna um stöðu mála, sem eru til afgreiðslu hjá embætti landlæknis, vill embættið koma því á framfæri að vegna fordæmalausra anna í tengslum við heimsfaraldur COVID-19 er fyrirsjáanlegt að tafir verði áfram á afgreiðslu erinda í mörgum málaflokkum hjá embættinu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Vegna margra fyrirspurna um stöðu mála, sem eru til afgreiðslu hjá embætti landlæknis, vill embættið koma því á framfæri að vegna fordæmalausra anna í tengslum við heimsfaraldur COVID-19 er fyrirsjáanlegt að tafir verði áfram á afgreiðslu erinda í mörgum málaflokkum hjá embættinu.

Öll mál sem berast embætti landlæknis eru sett í viðeigandi farveg. Öll mál eru afgreidd eins hratt og mögulegt er og þeim forgangsraðað eftir tilefni og getu hverju sinni.

Vakin er athygli á nýju netfangi hjá Miðstöð rafrænna heilbrigðislausna en beina skal erindum til mrh@landlaeknir.is