Fara beint í efnið

15. maí 2026

92 umsækjendur áfram í síðari hluta inntökuferlis í lögreglufræði

Fyrri hluta inntökuprófa í lögreglufræði er nú lokið en þau annast Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu í samstarfi við Háskólann á Akureyri.

Alls uppfylltu 189 umsækjendur almenn skilyrði námsins og voru boðaðir til þátttöku í fyrri hluta inntökuprófa.

Prófin eru byggð upp á þrek- og styrktarprófum, skriflegu frásagnarverkefni og sálfræðiprófum. Af þeim 189 sem sóttu um og voru boðaðir til prófa mættu 146 umsækjendur. Alls stóðust 92 umsækjendur þann hluta ferlisins, meðalaldur þeirra er tæplega 25 ár og eru konur um 35 prósent og karlar um 65 prósent.

Nú stendur yfir síðari hluti inntökuferlisins en það felur meðal annars í sér viðtöl, bakgrunnsskoðanir auk heilbrigðisskoðana en ríkar heilbrigðiskröfur eru gerðar til þeirra sem hyggjast hefja nám í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri.