Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. janúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

90 stöðubrot í Reykjavík

Mikið er um stöðubrot í Reykjavík en frá því á þriðjudag hefur lögreglan haft afskipti af um nítíu ökutækjum vegna þessa. Einkum var um að ræða bifreiðar í miðborginni og nágrenni hennar. Með stöðubroti er átt við ökutæki sem er lagt ólöglega, m.a á gangstéttum. Umráðamönnum þessara ökutækja er gert að greiða 2500 kr. en gjaldið rennur í Bílastæðasjóð.