Fara beint í efnið

28. mars 2023

89% verðandi foreldra velja stafræna umsókn

Í febrúar mánuði völdu 89% verðandi foreldra stafrænt umsóknarferli um fæðingarorlof.

stafr faedingarorlof mars23

Undanfarin tvö ár hefur stafræn umsókn um fæðingarorlof verið í stöðugri þróun hjá Stafrænu Íslandi og Vinnumálastofnun. Síðan opnað var fyrir stafrænar umsóknir í byrjun árs 2022, hefur áhersla verið lögð á að auka og bæta virkni umsóknarferlisins sem auðveldar verðandi foreldrum enn frekar að sækja um fæðingarorlof á einfaldan og notendavænan hátt. Í fyrstu útgáfu umsóknarinnar gátu um 70% verðandi foreldra sótt um fæðingarorlof stafrænt. Það voru þeir sem eru á almennum vinnumarkaði og sjálfstætt starfandi. Markvisst hefur verið unnið að því síðastliðið ár að gera stafrænu umsóknina aðgengilega fyrir alla. 

Meðal nýjunga má nefna að nú geta námsmenn, foreldrar utan vinnumarkaðar og á atvinnuleysisbótum sótt um fæðingarorlof á vefnum. Þá er einnig hægt að sækja um ný tímabil og breyta tímabilum á fæðingarorlofi. Nýjasti hópurinn sem mun á næstu misserum geta sótt um stafrænt eru þeir sem taka barn í varanlegt fóstur eða ættleiða barn. Að auki mun barnshafandi foreldri, sem vegna sérstakra aðstæðna þarf að dvelja fjarri heimili sínu fyrir fæðingu barns, geta sótt um dvalarstyrk. Þar með er hringnum lokað og stafrænt fæðingarorlof aðgengilegt öllum sem vilja. 

Hið nýja sjálfvirka ferli sækir öll þau gögn sem þurfa að fylgja umsókninni og sendir sjálfkrafa áfram til maka og atvinnurekanda til samþykktar, en ef kalla þarf eftir frekari gögnum, eins og læknisvottorði eða staðfestingu á skólavist námsmanna er nú hægt að bæta þeim gögnum við á síðari stigum í ferlinu.

Stafræn umsókn um fæðingarorlof hefur verið gríðarlega vel tekið af verðandi foreldrum en á aðeins einu ári velja 89% umsækjenda stafræna leið. Það sem áður krafðist töluverðrar vinnu er nú hægt að ganga frá með einföldum hætti í símanum. Umsóknin sparar umtalsverðan tíma og fyrirhöfn fyrir verðandi foreldra sem og eykur yfirsýn en hægt er að fylgjast með stöðu á umsóknum á Mínum síðum Ísland.is og í Ísland.is appinu.

Umsókninni var strax mjög vel tekið af notendum og notkun aukist jafnt og þétt þetta ár sem umsóknin hefur verið aðgengileg. Fyrsta mánuðinn sem umsóknin var gerð aðgengileg almenningi völdu 20% verðandi foreldra stafrænu leiðina sem var komið upp í 89% í febrúar á þessu ári og er enn að aukast. 

Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands:

Stafræn umsókn um fæðingarorlof hefur rutt leiðina fyrir flókna ferla sem kalla eftir gagnaöflun frá mörgum stofnum. Það er virkilega ánægjulegt og hvetjandi að sjá að verðandi foreldrar eru að taka stafræna ferlinu vel.

Stafræn umsókn um fæðingarorlof er gríðarstórt samstarfsverkefni Fæðingarorlofssjóðs, sem heyrir undir Vinnumálastofnun, og Stafræns Ísland. Það var upphaflega unnið í samstarfi við þróunarteymið Aranja, en frá mars 2022 tók ráðgjafafyrirtækið Deloitte við verkefninu.