Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. ágúst 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

59 teknir fyrir hraðakstur um helgina

Fimmtíu og níu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Brotin voru misgróf en sem dæmi má nefna að einn bíll mældist á 158 km hraða á Vesturlandsvegi, annar á 121 á Sæbraut og sá þriðji á 93 á Sævarhöfða.

Flestir ökumannanna voru stöðvaðir á Vesturlandsvegi en allmargir voru líka teknir á Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut. Þá var lögreglan ennfremur við hraðamælingar á Hafnarfjarðarvegi, Fífuhvammsvegi, Gullinbrú og í Hamrahlíð svo fáeinir staðir séu nefndir.