Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. febrúar 2026

58% mjög ánægð – áfram unnið að bættri þjónustu

Notendur opinberrar þjónustu hafa tækifæri til þess að meta gæði þjónustunnar og veita endurgjöf til þess að bæta hana. Nú senda margar stofnanir út rauntímakannanir sem skila mikilvægum upplýsingum til stjórnenda og starfsfólks um hvað gengur vel og hvar úrbótatækifæri leynast.

Alls eru 86% ánægð eða mjög ánægð samkvæmt könnuninni.

„Niðurstöður síðasta árs gefa skýrt til kynna að við erum á réttri leið. Umbætur í þjónustu opinberra stofnana, með áherslu á notendamiðaða hönnun, stafrænar lausnir og einfaldari ferla er lykilbreyta í því samhengi,“ segir Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.

Jákvæð þróun

Hlutfall þeirra sem eru mjög ánægð/ir með þjónustuna hefur aukist úr 30% árið 2020 í 58% árið 2025, samkvæmt nýjustu þjónustukönnun ríkisins. Alls eru 86% ánægð eða mjög ánægð.

Tæplega 140.000 svör bárust í könnuninni í fyrra, vegna þjónustu 62 stofnana. Þetta var fimmta árið í röð sem könnunin er gerð en hægt var að svara henni á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli.

Spurt er um ánægju með þjónustu, hraða þjónustunnar, áreiðanleika upplýsinga og reynslu af viðmóti starfsfólks og eru niðurstöður metnar á kvarðanum 1-5. Niðurstöðurnar benda til þess að allir þessi mælikvarðar séu á uppleið milli ára.

Reynsla af viðmóti 4,6
Hraði þjónustu 3,9

Opnunartími segir ekki alla söguna

Meðal stórra verkefna sem haft hafa áhrif á þjónustu hins opinbera undanfarin ár er skýr áhersla á að auðvelda fólki að leysa úr sínum erindum sjálft með betri umsóknarferlum, einfaldara greiðslukerfi og öruggu aðgengi að gögnum í gegnum Mínar síður Ísland.is. Það hefur meðal annars leitt til þess að stofnanir hafa getað aðlagað þjónustu og opnunartíma sína, minnkað álag í afgreiðslu og þjónustuverum og haft meiri rými fyrir flóknari fyrirspurnir og erindi.

Ánægja með þjónustu 4,3
Áreðianleiki upplýsinga 4,4

Könnunin er send með fjölda leiða, til dæmis tölvupósti, SMS skilaboðum, vefhlekk og QR kóða í afgreiðslum. Þær stofnanir sem fengu flest svör í fyrra voru þær sem innleitt hafa Þjónustukerfi Ísland.is en með því sendist könnunin sjálfvirkt til notenda tveimur dögum eftir að máli þeirra er lokað í kerfinu.

Skoðaðu niðurstöður þjónustukönnunar ríkisins hér

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.