8. september 2008
8. september 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
50 kannabisplöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 50 kannabisplöntur, þar af margar á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknar málsins. Efnin voru ætluð til sölu.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.