15. október 2008
15. október 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
40 kannabisplöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Breiðholti í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 40 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tveir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fertugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknar málsins. Á sama stað fannst talsvert af verkfærum en grunur leikur á að þau séu illa fengin.