Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. maí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

4 ára ökumaður ók á tvo bíla

Þrjátíu og eitt umferðaróhapp var tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í einu þeirra átti í hlut tæplega fjögurra ára drengur. Sá átti að bíða í fjölskyldubílnum rétt á meðan mamma hans þurfti að bregða sér frá en eins og barna er gjarnan siður fór sá litli að fikta í búnaði bílsins. Þegar mamman sneri til baka hafði bíllinn hennar, sem hún skyldi eftir í gangi á ónefndu bifreiðastæði, færst úr stað og rekist utan í tvo aðra kyrrstæða bíla. Drenginn sakaði ekki og skemmdir á bílunum voru minniháttar. Sá litli verður bíða lengi enn eftir ökuleyfinu en atvikið minnir okkur á að aldrei er of varlega farið enda eru börn óútreiknanleg.