Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. mars 2026

100 ný hjúkrunarrými að Urðarhvarfi

Samningur sem léttir á Landspítala

Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga og forstjóri Heilsuverndar undirrituðu í dag samning um rekstur og þjónustu í hjúkrunarrýmum að Urðarhvarfi 16 í Kópavogi.

Samningurinn tekur til þjónustu í 100 hjúkrunarrýmum fyrir einstaklinga með gilt færni- og heilsumat sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og bíða eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili. Þá felur samningurinn í sér heimild til að fjölga rýmum með sveigjanlegum hætti til að mæta tímabundinni aukinni þörf með skömmum fyrirvara.

Samningaviðræður hafa staðið yfir um nokkurt skeið og var upphaflega stefnt að opnun í maí. Í ljósi aukins fjölda einstaklinga sem bíða eftir úrræðum á Landspítalanum var hins vegar ákveðið að flýta opnun.

Fyrstu þjónustuþegar hafa þegar flutt inn og á næstu dögum og vikum munu fleiri einstaklingar flytja inn beint af Landspítalanum. Gert er ráð fyrir að hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu geti fjölgað um allt að 130 í sumar á grundvelli samningsins.

„Þessi samningur er mikilvægt skref í að bæta flæði innan heilbrigðiskerfisins. Með þessum 100 nýju hjúkrunarrýmum verður hægt að taka á móti einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og þurfa áframhaldandi umönnun, sem mun létta verulega á álagi spítalans. Um leið er mikilvægt að samningurinn er sveigjanlegur og gerir okkur kleift að bregðast hratt við aukinni þörf ef og þegar hún skapast,“ segir Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Mikilvægur áfangi fyrir heilbrigðiskerfið

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir opnunina mikilvægan áfanga: „Opnun Urðarhvarfs mun hafa jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið í heild en með tilkomu 100 nýrra rýma þar sem Landspítali hefur forgang bind ég vonir við að álag á spítalann minnki hraðar en vonir stóðu til. Fjölgun og endurnýjun eldri hjúkrunarrýma er lykilatriði í að tryggja örugga og góða þjónustu.“

Ný og vel búin aðstaða

Hjúkrunarrýmin eru staðsett á 2.–7. hæð hússins að Urðarhvarfi 16. Rýmin eru rúmgóð og vel búin, með eldhúskrók og sérbaðherbergi í hverju herbergi. Á hverri hæð eru sameiginlegar vistarverur, þar á meðal matsalur og setustofa. Á fyrstu hæð er aðstaða til iðju- og sjúkraþjálfunar auk annarrar tengdrar þjónustu. Á áttundu hæð er sameiginleg aðstaða með matsal, setustofu og hvíldarrýmum, auk rúmgóðra svala með útsýni.

"Verkefnið í heild hefur gengið vonum framar, húsinu var skilað fyrr og innan kostnaðaráætlunar sem er frábær árangur. Því erum við hér í dag og þjónustan hafin. Allur aðbúnaður er fyrsta flokks og er mikil tilhlökkun í okkar fólki sem hefur staðið sig einstaklega vel í öllum undirbúningi fyrir opnun. Niðurstaðan er glæsilegt hús með útsýni til allra átta og þjónustu fyrir aldraða sem um munar. Þakkir til allra sem að hafa komið, með samstilltu átaki er allt hægt." segir Teitur Guðmundsson, forstjóri Heilsuverndar.