Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. apríl 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

3 menn í gæsluvarðhald grunaðir um framleiðslu fíkniefna.

Þann 4. apríl s.l. handtóku lögreglumenn á Suðurlandi 3 erlenda einstaklinga á tveimur stöðum í Árnessýslu grunaða um framleiðslu fíkniefna. Þeir voru, í Héraðsdómi Suðurlands, úrskurðaðir í gæsluvarðhald þann 5. apríl til kl. 16:00 þann 12. sama mánaðar í þágu rannsóknar málsins. Tveir hinna handteknu kærðu úrskurð héraðsdóms til Landsréttar sem nú hefur staðfest úrskurð beggja þessara aðila.

Málið er á frumstigi rannsóknar og mun lögregla ekki gefa frekari upplýsingar um gang þess að sinni.