Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. apríl 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

3 litháískir karlmenn úrskurðaðir í farbann

Fimmtudaginn 4. apríl s.l. handtók lögreglan á Suðurlandi 3 litháíska karlmenn, 1 á þrítugs aldri og 2 á sextugsaldri, í tveimur aðskildum sumarhúsum í Árnessýslu grunaða um stórfellda ræktun kannabis þar. Hald var lagt á vel á þriðja hundrað fullvaxnar kannabisplöntur og auk þess nokkuð magn peninga í íslenskri og erlendri mynt. Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði mennina í gæsluvarðhald þann 5. apríl og átti það að renna út kl. 16:00 í dag. Tveir af þremur mannanna kærðu úrskurð héraðsdóms til Landsréttar og staðfesti Landsréttur úrskurðina.

Mennirnir voru færðir fyrir Héraðsdóm Suðurlands á ný í morgun og nú gerð krafa um að þeir sæti farbanni til 10. maí n.k. og féllst dómari á það.

Til rannsóknar er stórfelld framleiðsla fíkniefna og peningaþvætti henni tengd.

Frekari upplýsingar um stöðu máls eða efnisatriði þess verða ekki gefnar að sinni.