Fara beint í efnið

12. ágúst 2026

Sjúkratryggingar efla greiningar og alþjóðlegt samstarf

Danskur gagnagrunnur og endómetríósa.

Sjúkratryggingar og danska fyrirtækið Frameshift hafa hafið samstarf sem að styrkja greiningagetu Sjúkratrygginga, styðja betur við ákvarðanatöku og bæta yfirsýn yfir kostnað og árangur í íslensku heilbrigðiskerfi.

Markmið samstarfsins er betri nýting íslenskra gagna og bera niðurstöður saman við gögn úr umfangsmiklum dönskum heilbrigðisgagnagrunnum. Með því verður auðveldara að meta árangur meðferða, fylgjast með þróun kostnaðar og styðja við markvissari forgangsröðun í heilbrigðisþjónustu.

Danmörk er góður samanburður í þessu samhengi. Löndin búa við sambærilegt norrænt heilbrigðiskerfi og svipaða sjúkdómsbyrði. Danir hafa jafnframt byggt upp einn öflugasta heilbrigðisgagnagrunn heims þar sem hægt er að tengja saman upplýsingar um sjúkdómsgreiningar, meðferðir, lyf, klínískar niðurstöður og samfélagslega þætti á einstaklingsgrunni. Það gerir kleift að fylgjast með árangri meðferða yfir langan tíma og bera saman þróun milli landa.

Reynsla Dana sýnir að gildi slíkra gagna ræðst af því hvernig þau eru nýtt. Gagnasöfnin skila mestu þegar spurningin er skýrt skilgreind og úrvinnslan hönnuð með tiltekið ákvörðunarefni í huga.

Þar kemur Frameshift að verkefninu. Í stað staðlaðra samantekta geta Sjúkratryggingar fengið greiningar sem eru sniðnar að þeim verkefnum sem unnið er að hverju sinni. Þannig nýtast betur þær upplýsingar sem þegar liggja fyrir og samanburður við dönsk gögn verður mögulegur þar sem það á við.

Meðal annars verður skoðað hvernig biðtími, aðgengi að greiningu og meðferð hafa áhrif á heilsu fólks, lífsgæði, vinnuþátttöku, notkun heilbrigðisþjónustu og kostnað til lengri tíma.

Greiningarnar munu jafnframt nýtast við þróun samninga og greiðslukerfa þannig að opinberu fé sé varið þar sem það skilar mestum ávinningi fyrir einstaklinga og samfélagið.

"Við viljum byggja ákvarðanir um fjármögnun og skipulag heilbrigðisþjónustu á traustum upplýsingum. Með þessu samstarfi fáum við tækifæri til að bera íslenska heilbrigðisþjónustu saman við þennan öfluga danska gagnabanka og nýta þá þekkingu til að þróa betri samninga, efla kostnaðargreiningar og tryggja sem besta nýtingu opinberra fjármuna." segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

Fyrsta verkefnið snýr að endómetríósu

Í upphafi samstarfsins verður lögð áhersla á afmörkuð verkefni. Fyrsta verkefnið snýr að endómetríósu (legslímuflakk).

Með samanburði við dönsk gögn verður meðal annars hægt að skoða breytingar á heilsufarslegum og samfélagslegum þáttum hjá einstaklingum með endómetríósu fyrir og eftir meðferð sem og þróun kostnaðar og hvort mismunur á aðgengi að þjónustu skýri ólíkar upplifanir og útkomur. Þekkingin getur orðið mikilvægur grunnur að markvissari ráðstöfun fjármuna og þróun þjónustu fyrir einstaklinga með endómetríósu.

Samstarf sem styður betri ákvarðanir

Samstarfið er liður í stefnu Sjúkratrygginga að efla greiningargetu stofnunarinnar og byggja ákvarðanatöku í auknum mæli á gögnum, rannsóknum og alþjóðlegum samanburði. Markmiðið er að bæta þjónustu, nýta opinbert fé sem best og styðja við heilbrigðiskerfi sem skilar sem mestum árangri fyrir sjúklinga og samfélagið.

Frameshift var stofnað af Ólafi B. Davíðssyni og Ragnari P. Kristjánssyni. Báðir eru þeir með doktorsgráðu frá Háskólanum í Kaupmannahöfn og búa yfir víðtækri reynslu af rannsóknum, tölfræði og greiningu heilbrigðis- og lýðheilsugagn a, meðal annars frá dönskum rannsóknarstofnunum og Íslenskri erfðagreiningu. Fyrirtækið hefur meðal annars unnið með Coloplast/Kerecis, Sidekick Health, Háskólanum í Reykjavík, Rigshospitalet í Kaupmannahöfn og fleiri innlendum og alþjóðlegum samstarfsaðilum.