11. júní 2026
11. júní 2026
Umfangsmiklar breytingar á lögum um sjúkratryggingar
Alþingi samþykkti þann 1. júní sl. umfangsmiklar breytingar á lögum um sjúkratryggingar sem taka að mestu gildi 1. ágúst 2026.

Markmið breytinganna er meðal annars að styrkja hlutverk Sjúkratrygginga sem kostnaðargreinanda og kaupanda heilbrigðisþjónustu, efla gagnadrifna ákvarðanatöku, bæta eftirlit og stuðla að skilvirkari nýtingu fjármuna í heilbrigðiskerfinu.
Meðal helstu breytinga eru:
Biðtími eftir sjúkratryggingu styttist. Þetta þýðir að þeir sem flytja frá löndum utan EES þurfa að bíða í þrjá mánuði eftir sjúkratryggingu, eftir að þeir flytja lögheimili sitt til landsins. Biðtíminn var áður sex mánuðir.
Þeir sem ferðast til landa utan EES eftir 1. ágúst nk. verða ekki tryggðir gagnvart kostnaði sem þeir kunna að verða fyrir vegna veikinda eða slysa. Ferðamönnum er bent á að kanna tryggingarétt sinn hjá tryggingafélögum og athuga kortatryggingar sínar.
Áréttað er í lögunum að ákvarðanir Sjúkratrygginga skuli byggja á gagnreyndri þekkingu og faglegu og hagrænu mati.
Sjúkratryggingar fá auknar heimildir til gagnaöflunar og eftirlits til að tryggja rétta framkvæmd og greiðslur.
Ný ákvæði styrkja heimildir stofnunarinnar til kostnaðargreiningar, eftirlits með samningum og þjónustutengdri fjármögnun.
Heimildir til að nýta sérstök fjármögnunarlíkön við greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu verða skýrari.
Kveðið er á um aukna samræmingu upplýsinga, skráningu biðlista og miðlun gagna í þágu betri þjónustu og eftirlits.
Aukin áhersla á stafræna þjónustu, rafræn samskipti og örugga meðferð persónuupplýsinga.
Stjórn Sjúkratrygginga verður lögð niður.
Lögin má finna hér: 1257/157 lög í heild: sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir | Þingtíðindi | Alþingi