10. desember 2025
10. desember 2025
Einstaklingar geta nú sjálfir endurnýjað ákveðnar hjálpartækjaheimildir
Ný virkni á Mínar síður á island.is

Ný virkni er komin á Mínar síður á island.is sem gerir einstaklingum kleift að endurnýja ákveðnar hjálpartækjaheimildir sjálfir, án milligöngu heilbrigðisstarfsfólks eða seljenda. Sama virkni hefur verið aðgengileg í Gagnagátt Sjúkratrygginga frá því í sumar fyrir heilbrigðisstarfsfólk og seljendur.
Þær vörur sem virknin er komin inn fyrir eru meðal annars:
Þvagleggi og þvagpoka
Ákveðin hjálpartæki vegna sykursýki
Hárkollur, höfuðföt, gerviaugabrúnir, augnhár og húðflúr
Þrýstisokkar
Gómar vegna kæfisvefns
Gervibrjóst og fleygar
Bleiur
Stómavörur
Hlífðarhanskar
Innlegg í skó
Þessar umsóknir afgreiðast strax, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, og berst svarbréf daginn eftir í stafræna pósthólfið. Þróun þessarar virkni heldur áfram hjá Sjúkratryggingum og verður fleiri heimildum bætt með tímanum.
Hjálpartækjaheimildirnar má finna á Mínum síðum undir Heilsa → Hjálpartæki og næring:

Þessi viðbót er mikilvægt skref í þjónustu Sjúkratrygginga og eykur skilvirkni fyrir heilbrigðisstarfsfólk og seljendur en fyrst og fremst einfaldar þetta endurnýjanir fyrir einstaklinga sem þurfa á hjálpartækjum að halda.