24. október 2025
24. október 2025
Rafræn samskipti Sjúkratrygginga
Umsóknum um hjálpartæki skal skila rafrænt í gegnum Gagnagátt Sjúkratrygginga. Á það við um umsóknir og öll fylgiskjöl.

Þegar umsókn er skilað skal fara inn á Gagnagáttina og velja: ,,Vottorð og umsóknir” / ,,Hjálpartækja- og næringarumsókn”. Þá er líka hægt að sækja um rafrænt í gegnum sjúkraskrárkerfi eins og Sögu og Leviosa.
Allar fyrirspurnir fagaðila í gegnum fyrirspurnarkerfi
Til að auka öryggi og skilvirkni munu Sjúkratryggingar eingöngu svara fyrirspurnum í gegnum fyrirspurnarkerfi: https://samband.sjukra.is/.
Ef senda þarf viðbótargögn fyrir mál sem þegar er í vinnslu hjá Sjúkratryggingum skal nota valmöguleikann ,,skjalaskil" / ,,rafræn skil á skrám" þegar komið er inn á Gagnagátt og vísa í viðeigandi númer.
Fyrirspurnir frá einstaklingum
Sjúkratryggingar vilja benda á að fyrirspurnum frá einstaklingum er aðeins svarað ef þær berast í gegnum fyrirspurnakerfi Sjúkratrygginga á https://samband.sjukra.is/.
Einungis á að nota valmöguleikann ,,Gagnaskil einstaklinga” ef senda þarf viðbótargögn í mál sem þegar er til vinnslu hjá Sjúkratryggingum og vísa í viðeigandi málsnúmer.