5. mars 2026
5. mars 2026
Betri gagnaskil til Skattsins
Yfirlit yfir útlagðan sjúkrakostnað á Mínum síðum

Nú er hægt að nálgast yfirlit yfir útlagðan sjúkrakostnað á Mínum síðum Ísland.is sem auðveldar skil á gögnum, til að mynda til Skattsins. Bætt hefur verið virkni undir hnappinum Heilsa þar sem nálgast má upplýsingar um greiðslur og réttindi hjá Sjúkratryggingum, og sækja þar yfirlit sjúkrakostnaðar eftir tímabilum með einföldum hætti.

Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir þau sem þurfa að skila inn yfirliti yfir sinn sjúkrakostnað með skattskýrslu hvers árs.