Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Tilvísanir barna til sérgreinalækna

Þann 1. júní síðastliðinn tóku gildi tvær reglugerðabreytingar um tilvísanir barna og greiðsluþátttöku.

Reglugerðirnar sem um ræðir eru númer 1551/2023 og 313/2017.

Helstu breytingar sem gerðar voru eru:

  • Bráða- og vaktþjónusta barnalækna, þjónusta kvensjúkdómalækna og þjónusta augnlækna verður gjaldfrjáls fyrir börn og þannig er ekki þörf á tilvísunum. Enn er þörf fyrir tilvísun barna (yngri en 18 ára) til annarra sérgreinalækna.

  • Sérgreinalæknir, sem fengið hefur tilvísun frá heimilis- eða heilsugæslulækni, getur nú vísað barni til annars sérgreinalæknis ef hann telur að það þurfi á annars konar sérfræðiþjónusta að halda.

  • Ekki er þörf á tilvísun heimilis- eða heilsugæslulæknis í myndgreiningar- og rannsóknarþjónustu.

  • Sjúkrahúslæknir getur nú vísað barni til sérgreinalæknis.

  • Heimilt er að gefa út tilvísun fyrir börn með langvinna sjúkdóma eða fötlun sem gildir að 18 ára aldri ( í stað 10 ára í senn).

Rétt er að minna á mikilvægi heilsugæslunnar sem er ætlað að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðiskerfinu og sinna allri almennri heilbrigðisþjónustu sem og leiðbeina um hvert skuli leita þegar þörf er á sérhæfðari þjónustu, sbr. 2 gr. reglugerðar nr. 313/2017 og núgildandi heilbrigðisstefnu.