Fara beint í efnið

30. júní 2022

Breytingar á hýsingu kerfa Sjúkratrygginga

Laugardaginn 9. júlí 2022 kl. 00:30 hefst breyting á hýsingu kerfa Sjúkratrygginga. Áætlað er að aðgerðir standi fram til kl. 15:00 sama dag.

Sjúkratryggingar lógó

Hægt verður að skipta yfir á varaleið meðan á breytingu stendur og mun aðalumhverfi vísa tímabundið yfir á hana. Ekki eru þó allar þjónustur í boði á varaleið.

Nánar um breytingu og stöðuppfærslur er að finna á upplýsingasíðu kerfa: https://status.sjukra.is

Breytingar eru nauðsynlegar svo unnt sé að auka enn frekar uppitíma og áreiðanleika kerfa Sjúkratrygginga. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.