Fara beint í efnið

21. júní 2022

Afgreiðslutími evrópskra sjúkratryggingakorta

Nú er sumarleyfistími genginn í garð og margir á ferð erlendis. Sjúkratryggingar vilja benda á að afgreiðslutími fyrir evrópska sjúkratryggingakortið er 10-14 virkir dagar.

Sjúkratryggingar lógó

Einstaklingar sækja um kortið í Réttindagátt Sjúkratrygginga og er kortið er sent á lögheimili umsækjanda.

Ef kortið berst ekki í tæka tíð fyrir ferð má sækja um rafrænt kort í Réttindagátt. Rafrænt kort hefur alveg sama gildi og hefðbundið kort.

Nánari upplýsingar má finna hér: Evrópska sjúkratryggingakortið