Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. febrúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

200 kannabisplöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni eftir hádegi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 200 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Í framhaldinu voru framkvæmdar húsleitir á tveimur öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Á öðrum þeirra fundust ætluð fíkniefni og talsverðir fjármunir sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum dómsúrskurði.