Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. apríl 2003

Þessi frétt er meira en árs gömul

200 ára afmæli einkennisklæddu lögreglunnar

Laugardaginn 26. apríl var lögreglustöðin á Ísafirði opin almenningi til sýnis í tilefni dagsins, frá klukkan 11:00 fram til klukkan 17:00. Síðasti gesturinn yfirgaf reyndar lögreglustöðina þegar klukkan var langt gengin í sex. Lögreglumenn áætluðu að á milli 4 og 500 manns hafi komið í heimsókn. Margt var gert til skemmtunar og fróðleiks fyrir gestina. Viðamikil sýning var á ýmsum munum sem lögreglan hefur lagt hald á og síðan verið gert upptækt, nokkrir búningar lögreglu voru settir upp. Þá voru lögreglubifreiðannar til sýnis utandyra. Fengu börnin að setjast inn í bílana og teknar voru af þeim myndir. Myndirnar voru teknar á stafræna myndavél sem verða sendar um netið til þeirra á næstu dögum. Þá voru tekin fingraför af gestum, sem þeir fengu með sér heim. Fangelsið var opnað upp á gátt og fólk fékk að skoða allt þar sem því langaði til. Varðstjóraskrifstofu lögreglunnar var breytt í sýningarherbergi þennan dag, fyrir sérsafn þeirra Jóns Svanbergs Hjartarsonar varðstjóra og Þorkels Lárusar Þorkelssonar lögreglumanns. Þeir félagar eru í samskiptum við lögreglumenn út um allan heim og safna lögregluhúfum og armmerkjum lögreglumanna. Eru söfn þeirra hin merkilegustu og var mikill fengur í að fá að hafa þau til sýnis af þessu tilefni. Hér með eru nokkrar myndir sem teknar voru þenna dag.

Myndir voru teknar af börnunum.

Glæsilegt húfusafn varðstjórans (eig. JSH).

Kaffistofunni var breytt í sýningarsal.

Sérsveitarmerki (eig ÞLÞ).

Stöðueinkenni lögreglunnar (eig. JSH).

Hluti sýningarinnar.