Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. mars 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

20 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu

Tuttugu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær, eða frá klukkan fjögur til sjö. Óhöppin voru flest minniháttar og lögreglu er ekki kunnugt um alvarleg slys á fólki. Þetta voru aðallega árekstrar en eitthvað var um útafakstur. Dráttarbíll var kallaður til í einhverjum tilfellum til að fjarlægja ökutæki af vettvangi og því ljóst að eignatjón var talsvert í einhverjum tilvikum.