Fara beint í efnið

13. mars 2019

19 mánaða drengur mögulega með mislinga

Í gær (13.3.2019) greindist 19 mánaða drengur með mögulega mislinga í Reykjavík en hann hafði verið bólusettur fyrir 3 vikum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Í gær (13.3.2019) greindist 19 mánaða drengur með mögulega mislinga í Reykjavík en hann hafði verið bólusettur fyrir þremur vikum. Hann veiktist með mislingalíkum útbrotum þann 11.3.2019 en var einkennalaus að öðru leyti. Drengurinn var ekki í leikskóla en í heimapössun hjá foreldrum og ættingjum. Það er því ekki saga um samgang við einstakling sem smitaður var af mislingum svo vitað sé.

Hugsanlega er hér um útbrot af völdum bólusetningarinnar að ræða en vitað er að bólusetningar geta valdið mislingalíkum útbrotum í 5% tilfella. Litlar líkur eru á smiti til annarra í slíkum tilfellum.

Drengurinn verður hafður í einangrun í 4–5 daga en vitað er að einstaklingar með mislinga hætta að smita 4–5 dögum eftir að útbrot koma fram.

Fleiri sýni eru til skoðunar hjá veirudeild Landspítala og niðurstöðu að vænta síðar í dag.

Sóttvarnalæknir

Miðvikudagur, 13. mars kl. 11:20