21. febrúar 2006
21. febrúar 2006
Þessi frétt er meira en árs gömul
15 grömm af hassi fundust á Egilsstaðaflugvelli.
Lögreglan á Egilsstöðum lagði í gærkvöldi hald á um 15 grömm af hassi sem kom með innanlandsflugi á Egilsstaðaflugvöll. Var karlmaður á Reyðarfirði handtekinn í samvinnu við lögregluna á Eskifirði. Viðurkenndi maðurinn að eiga efnið sem hann sagðist ætla bæði til eigin nota og til sölu. Málið telst upplýst.