Fara beint í efnið

Útlendingastofnun lýkur málsmeðferð sinni með ákvörðun. Ákvörðun í máli umsækjanda um alþjóðlega vernd er kynnt honum við birtingu ákvörðunar.
 

Rökstuðningur

Útlendingastofnun veitir almennt ítarlegan rökstuðning samhliða ákvörðun. Þegar ekki fylgir ítarlegur rökstuðningur getur umsækjandi um alþjóðlega vernd óskað eftir frekari skriflegum rökstuðningi ef umsókn hans hefur ekki verið tekin til greina að öllu leyti. Beiðni um rökstuðning skal leggja fram innan 14 daga frá því að ákvörðun Útlendingastofnunar er birt umsækjanda.
 

Kæra til kærunefndar útlendingamála

Telji umsækjandi um alþjóðlega vernd að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi ekki farið fram með réttum hætti, mat stofnunarinnar á aðstæðum hans sé rangt eða ef hann er ósáttur að öðru leyti við ákvörðun Útlendingastofnunar getur hann kært ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála. Umsækjanda um alþjóðlega vernd er gefinn kostur á að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar strax á þeim fundi sem hún er birt honum eða taka sér umhugsunarfrest sem er 15 dagar í hefðbundnum efnismeðferðarmálum en fimm dagar þegar mál umsækjanda hefur verið tekið til forgangsmeðferðar.
 

Beiðni um endurtekna umsókn

Ef útlendingur, sem áður hefur sótt um alþjóðlega vernd hér á landi, kemur aftur til landsins og telur nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli sínu sem leitt geta til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans, getur hann lagt fram beiðni og óskað þess að stofnunin skoði málið með hliðsjón af hinum nýju upplýsingum eða aðstæðum.

Beiðni um endurtekna umsókn skal leggja fram hjá lögreglu á Domus Medica, Egilsgötu 3, 101 Reykjavík. Beiðnin er fyllt út af lögreglu sem veitir frekari leiðbeiningar og upplýsingar við framlagningu beiðninnar. Í beiðninni þarf að koma fram með skýrum hætti af hverju beiðnin er lögð fram og hvað hafi breyst. Hafi útlendingur gögn skulu þau lögð fram samhliða beiðninni.

Beiðni um endurtekna umsókn skal beint að því stjórnvaldi sem tók þá ákvörðun sem leitað er endurskoðunar á. Það þýðir, að útlendingur sem ekki hefur yfirgefið landið og hefur kært ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála, verður að leggja fram beiðni sína hjá kærunefnd útlendingamála. Berist stofnuninni beiðni um endurtekna umsókn í máli sem hefur verið til meðferðar hjá kærunefndinni vísar stofnunin henni frá. Kærunefnd útlendingamála tekur við beiðnum um endurtekna umsókn á netfanginu postur@knu.is.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun