Fara beint í efnið

Alþjóðleg vernd er fyrir fólk sem sætir ofsóknum í heimalandi sínu eða á þar á hættu dauðarefsingu, pyndingar eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Ríkisfangslausir einstaklingar eiga rétt á alþjóðlegri vernd á grundvelli ríkisfangsleysis.

Þú þarft að vera á Íslandi til að sækja um vernd

Ef þú vilt sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi þarftu að vera á Íslandi, annað hvort við landamæri landsins eða innan þeirra. Umsóknin þarf ekki að vera á tilteknu formi og nægir að þú lýsir ósk þinni munnlega.

Þú getur sótt um vernd hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins. Ef þú ert þegar á Íslandi getur þú sótt um vernd í móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að Egilsgötu 3 í Reykjavík. Þar er opið á dagvinnutíma. Ef þú ert utan höfuðborgarsvæðisins getur þú sótt um vernd á næstu lögreglustöð.

Umsóknir um alþjóðlega vernd sem sendar eru til Íslands frá einstaklingum sem eru erlendis eru ekki teknar til meðferðar. Þú getur því ekki sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi meðan þú ert erlendis.

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun