Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vöktun smitsjúkdóma og sjúkdómsvalda

Verklagsreglur um læknisrannsókn á fólki sem flyst til Íslands

Með umsækjendum um dvalarleyfi er í þessum verklagsreglum átt við þá sem sækja um dvalarleyfi, dvalarskírteini aðstandenda EES-EFTA ríkisborgara eða alþjóðlega vernd sem og kvótaflóttamenn, sbr. lög um útlendinga nr. 80/2016.

Umsækjendur frá löndum Mið- og Suður-Ameríku, þ.m.t Mexíkó, Evrópu utan Evrópska efnahags­svæðisins (EES), Asíu eða Afríku skulu gangast undir læknisrannsókn vegna sóttnæmra sjúkdóma. Hafi umsækjandi fullgilt erlent læknisvottorð sem uppfyllir þessar verklagsreglur að mati læknis og sé það ekki eldra en þriggja mánaða, þarf viðkomandi ekki að gangast undir læknisrannsókn. Umsækjendur frá löndum innan EES, Sviss, Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Japan eða Ísrael þurfa ekki að gangast undir læknisrannsókn. Einungis þeir einstaklingar sem munu fara úr landi innan átta vikna eftir komu geta verið undanþegnir neðangreindum rannsóknum að því gefnu að þeir hafi engin einkenni sem geta bent til smitsjúkdóms.

Læknar á Íslandi með lækningaleyfi geta framkvæmt læknisrannsókn samkvæmt þessum verklags­reglum. Þegar læknisrannsókn er lokið skulu læknar senda Útlendingastofnun staðfestingu á því að fullnægjandi læknisrannsókn hafi verið gerð.

Með læknisrannsókn er átt við:

Almenna læknisskoðun sem gefur vísbendingu um heilsufarsástand þess sem sækir um dvalar­leyfi. Kanna skal hvaða bólusetningar umsækjandi hefur fengið. Sé bólusetningum ábótavant skal tryggja að viðkomandi sé boðin bólusetning í samræmi við leiðbeiningar um almennar bólu­setningar hér á landi. Ef tilkynningarskyldur sjúkdómur greinist, sbr. reglugerð um skýrslugerð vegna sóttvarna númer 221/2012 er mælst til að samráð um meðferð og eftirlit verði haft við göngu­deildir sem sinna slíkum sjúkdómum samanber 1. greinar reglugerðar um sóttvarnaráðstafanir númer 817/2012.

Berklarannsókn: Berklapróf (húðpróf eða interferonlosunarpróf; IGRA) skal gera hjá öllum börnum og barnshafandi einstaklingum. Einnig skal gera slíkt próf hjá fullorðnum 35 ára og yngri sem munu dvelja hér lengur en 12 mánuði. Bendi berklapróf til berklasmits skal taka röntgenmynd af lungum. Röntgenmynd er fullnægjandi rannsókn á fullorðnum einstaklingum sem dvelja skemur en 12 mánuði og af þeim sem eru eldri en 35 ára óháð lengd dvalar.

Rannsókn vegna þarmasmits: Saurrannsókn (ræktun og smásjárskoðun) skal gera hjá þeim sem hafa einkenni eða hafa haft einkenni frá meltingarvegi. Leita skal að þarmasmiti sem er tilkynningarskylt (salmonella, sígella, kampýlóbakter og Giardia lamblia). Slíka leit skal gera hjá öllum börnum yngri en sex ára án tillits til einkenna.

Rannsókn vegna lifrarbólgu B og lifrarbólgu C: Leita skal að lifrarbólgu B og lifrarbólgu C.

Rannsókn vegna HIV: Gera skal HIV-próf.

Rannsóknir vegna kynsjúkdóma: Rannsaka ber þá sem hafa einkenni um kynsjúkdóm eða ef rök­studdur grunur um kynsjúkdóm vaknar. Gera skal sárasóttarpróf (syphilis) hjá öllum.

Læknisrannsókn getur einnig tekið til annarra heilsufarsþátta sem ógna heilsu manna á hverju því landsvæði sem komið er frá. Frekari rannsóknir skulu þá gerðar samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis.

Læknisskoðun og aðrar rannsóknir samkvæmt verklagsreglum þessum skulu framkvæmdar í einni og sömu heimsókn svo fremi að því verði við komið.

Við upphaf skólagöngu barna sem verklagsreglur þessar taka til skal skólahjúkrunarfræðingur ganga úr skugga um hvort gerð hafi verið læknisrannsókn samkvæmt þessum verklagsreglum. Hafi svo ekki verið skal skólahjúkrunarfræðingur/heilsugæsla liðsinna fjölskyldu við að fá skoðun, bólusetningar og eftirlit eftir því sem við á. Bið eftir skoðun einkennalausra barna ætti ekki að tefja upphaf skólagöngu. Veikt barn með einkenni smitandi sjúkdóms ætti að fá skoðun og meðferð í samræmi við veikindi en ekki bíða sérstakrar skoðunar vegna dvalarleyfis.

Kostnaður vegna læknisrannsókna sem gerðar eru vegna umsóknar um dvalar- og atvinnuleyfi og eru í samræmi við verklagsreglur þessar greiðist af vinnuveitanda eða þeim sem sækir um dvalar- eða atvinnuleyfið samanber 10. grein reglugerðar númer 817/2012. Leiði læknisrannsókn í ljós þörf fyrir frekari sér­tækar rannsóknir þá greiðir umsækjandi eða sjúkratrygging hans kostnað við þau heilsufarslegu vandamál önnur en tilkynningarskylda smitsjúkdóma sem greinast fyrstu sex mánuðina sem dvalið er í landinu. Læknisrannsókn sem vinnuveitandi óskar sérstaklega eftir greiðist af vinnuveitanda.

Greiðslur vegna læknisrannsókna sem gerðar eru á umsækjendum um alþjóðlega vernd og kvóta­flóttafólki skulu vera þessum einstaklingum að kostnaðarlausu sem og kostnaður vegna bóluefna sem falla undir almennar bólusetningar á Íslandi.

Mælst er til að við ákvörðun um meðferð og frekara eftirlit verði samráð haft við göngudeildir sem sinna slíkum sjúkdómum það er göngudeild smitsjúkdóma á Landspítala og húð- og kynsjúkdómadeild Landspítala. Kostnaður vegna rannsókna og meðferðar tilkynningarskyldra sjúkdóma skal vera ein­staklingum að kostnaðarlausu samanber 11 grein reglugerðar númer 817/2012 með síðari breytingum.

Verklagsreglur þessar eru settar á grundvelli sóttvarnalaga númer 19/1997 samanber einnig reglugerð um sóttvarnaráðstafanir númer 817/2012 og taka við af eldri verklagsreglum frá nóvember 2019.

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis