Börn flóttamanna á Íslandi eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi með fjölskyldusameiningu við foreldri. Skilyrði er að barnið hafi fæðst áður en foreldrið fékk vernd á Íslandi, sé yngra en 18 ára, í forsjá þess foreldris sem það sækir um sameiningu við og ógift.
Fyrir börn sem fæðast eftir að foreldri fékk veitta vernd á Íslandi þarf að sækja um almennt dvalarleyfi fyrir börn.
Barn, sem fær alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann, fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem það sameinast hér á landi. Barnið er skilgreint sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd þess og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.
Að öðrum kosti er hægt að sækja um almennt dvalarleyfi fyrir börn án alþjóðlegrar verndar.
Umsókn
Umsóknum er aðeins hægt að skila á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan skilakassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.
Umsókn skal vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila.
Kostnaður
Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald fyrir umsókn um alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann.
Lög
Dvalarleyfi fyrir börn eru veitt á grundvelli 73. greinar laga um útlendinga.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun