Alþjóðleg vernd fyrir börn flóttamanna
Fylgigögn
Það er á ábyrgð forsjáraðila
að leggja fram nauðsynleg fylgigögn umsóknar til staðfestingar á því að umsækjandi uppfylli skilyrði laga og reglugerða fyrir veitingu dvalarleyfis
að tryggja að gögnin séu á því formi sem gerð er krafa um og staðfest með þeim hætti sem nauðsynlegt er, sjá leiðbeiningar neðar á síðunni.
Ef fullnægjandi gögn berast ekki með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað.
Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.
Passamynd skal vera af stærðinni 35x45 mm.
Vegabréfið þarf að vera í gildi þegar umsókn er lögð fram.
Ljósrit þarf að vera af síðum með persónuupplýsingum og undirskrift umsækjanda.
Fæðingarvottorð barns þarf annaðhvort að leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti frá heimalandi barns eða sem staðfest afrit af lögformlega staðfestu frumriti, sjá kröfur til skjala neðst á síðunni.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að leggja fram þýðingu þess, sjá kröfur til skjalaþýðinga neðst á síðunni.
Aðeins forsjárforeldrar eiga rétt á fjölskyldusameiningu við börn sín.
Gögn sem geta sýnt fram á hver fer með forsjá barns
Forsjárgögn, sem gefin eru út af þar til bæru stjórnvaldi, svo sem sýslumanni eða dómstólum. Gögnin mega ekki vera eldri en sex mánaða gömul þegar umsókn er lögð fram.
Skilnaðargögn. Ef foreldrar barns eru lögskildir og fram kemur í skilnaðargögnum hver fer með forsjá barns, teljast slík gögn nægileg til staðfestingar á forsjá.
Dánarvottorð. Ef annar forsjáraðili barns er látinn og eftirlifandi forsjáraðili fer einn með forsjá þess telst staðfest afrit dánarvottorðs nægileg staðfesting á forsjá.
Samþykki hins forsjárforeldrisins
Ef báðir foreldrar fara með forsjá barns þarf einnig að leggja fram frumrit vottaðs samþykkis þess foreldris sem ekki er sótt um fjölskyldusameiningu við.
Kröfur til skjala
Gögnin þarf að leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti eða sem staðfest afrit af lögformlega staðfestu frumriti, sjá kröfur til skjala neðst á síðunni.
Ef forsjárgögnin eru á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að leggja fram þýðingu þeirra, sjá kröfur til skjalaþýðinga neðst á síðunni.
Aðeins þarf að leggja fram afrit af sakavottorði með umsókn ef barn hefur náð 15 ára aldri.
Sakavottorðið
þarf að vera gefið út af búseturíki umsækjanda
má ekki vera eldra en 12 mánaða
skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í viðkomandi ríki
Komi fram dómur á sakavottorði, þarf einnig að leggja fram staðfest gögn frá yfirvöldum um hvort og hvenær umsækjandi hafi lokið afplánun.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að leggja fram þýðingu þess, sjá kröfur til skjalaþýðinga neðst á síðunni.
Ólíkar reglur eftir löndum
Mismunandi reglur geta gilt um útgáfu sakavottorða eftir löndum. Vottorðið þarf að sýna að leitað hafi verið í gagnagrunnum alls landsins en ekki einungis á ákveðnum svæðum (til dæmis ríkjum eða fylkjum).
Dæmi um réttmætan útgefanda:
Bandaríkin – FBI sakavottorð
Það eru tvær leiðir til að nálgast FBI sakavottorð. Annars vegar með því að póstleggja beiðni til FBI og fá útgefið sakavottorð sent til umsækjanda í bréfpósti og hins vegar með því að sækja um rafrænt sakavottorð beint frá FBI eða hjá sérstökum veitum sem samþykktar hafa verið af FBI. Það tekur styttri tíma að fá sakavottorð útgefið rafrænt með aðstoð slíkra veitna.
Á heimasíðu FBI hefur verið tekinn saman listi yfir þær veitur sem samþykktar hafa verið af FBI. Hafa þarf í huga að vottorð frá sumum veitum er ekki hægt að opna utan Bandaríkjanna og því ekki hægt að nota þjónustu þeirra til að skila sakavottorði til Útlendingastofnunar.Í báðum tilfellum þarf umsækjandi að láta taka af sér fingraför og senda þau með beiðni um sakavottorð. Hér á landi eru fingraför tekin af umsækjanda hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Kanada – RCMP sakavottorð
Filippseyjar – NBI sakavottorð
Taíland – Royal Thai Police
Brasilía – Ministério da Justica – Polícia Federal
Mexíkó – SEGURIDAD - (Secretaría De Seguridad Y Protección Ciudadana)
Bretland – ACRO sakavottorð (ACRO Criminal Records Office - Police Certificates)
Athugið að oft tekur nokkurn tíma að fá útgefið sakavottorð og viðeigandi staðfestingu.
Umsækjandi þarf að leggja fram vottaða viljayfirlýsingu um að hann vilji búa hjá foreldri/ foreldrum á Íslandi.
Viljayfirlýsing verður að vera undirrituð af barni og vottuð af tveimur vottum.
Aðeins þarf að leggja fram hjúskaparstöðuvottorð með umsókn ef barn hefur náð 16 ára aldri.
Hjúskaparstöðuvottorð þarf annaðhvort að leggja fram í lögformlega staðfestu frumriti frá heimalandi barns eða sem staðfest afrit af lögformlega staðfestu frumriti, sjá kröfur til skjala neðst á síðunni. Vottorðið má ekki vera eldra en sex mánaða þegar umsókn er lögð fram.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli þarf einnig að leggja fram þýðingu þess, sjá kröfur til skjalaþýðinga neðst á síðunni.
Ef þú vilt að einhver annar en þú fái upplýsingar um vinnslu umsóknarinnar hjá Útlendingastofnun þarftu að skila inn umboði þess efnis.
Viðbótargögn sem börn flóttamanna gætu þurft að leggja fram
Útlendingastofnun getur óskað eftir afriti af samskiptum milli umsækjanda og flóttamanns sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, til dæmis á samskiptaforritunum Viber, Facebook eða WhatsApp.
Ekki þarf að afhenda afrit af öllum samskiptum heldur aðeins að sýna fram á að samskipti hafi spannað tiltekið tímabil.
Hægt er að taka skjáskot af samskiptum og senda sem viðhengi á utl@utl.is, prenta út og skila til Útlendingastofnunar eða skila þeim inn á USB lykli.
Útlendingastofnun getur óskað eftir ljósmyndum af umsækjanda og flóttamanni, sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, saman við hátíðahöld, á ferðalögum sem og úr hversdagslífi þeirra á mismunandi tímum.
Hægt er að senda myndir sem viðhengi á utl@utl.is eða skila þeim inn á USB lykli.
Hvort umsækjandi hafi búið hjá foreldri áður en þau urðu viðskila.
Hvar umsækjandi og foreldri bjuggu eftir að umsækjandi fæddist (borg eða bær).
Hvort umsækjandi hafi áður búið með foreldri sem núna er búsett á Íslandi.
Hvar umsækjandi bjó eftir að umsækjandi og foreldri urðu viðskila (borg eða bær).
Hvort umsækjandi hafir verið búsettur hjá skyldmennum eða vinum.
Hvernig og hversu oft umsækjandi og foreldri hafa verið í sambandi frá því að þau urðu viðskila.
Hvers vegna umsækjandi fylgdi ekki foreldri þegar foreldrið fór til Íslands og sótti um alþjóðlega vernd.
Ef þörf þykir getur Útlendingastofnun óskað eftir að umsækjandi leggir fram sakavottorð í lögformlega staðfestu frumriti eða staðfestu afriti af lögformlega staðfestu frumriti.
Vottorðið skal gefið út af æðsta yfirvaldi sem heimilt er að gefa út slíkt vottorð í búsetulandi umsækjanda.
Það má ekki vera eldra en 12 mánaða á umsóknardegi.
Ef vottorðið er á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, verður því að fylgja þýðing löggilts skjalaþýðanda.
Ef þýðandinn hefur ekki fengið löggildingu á Íslandi þarf lögformlega staðfestingu á frumrit þýðingarinnar.
Útlendingastofnun getur óskað eftir að fá skriflegar upplýsingar um hvort umsækjandi hafi einhver fjölskyldutengsl hér á landi, það er hvort viðkomandi eigi aðra ættingja á Íslandi en þann sem óskað er eftir fjölskyldusameiningu við, og hvernig þeim fjölskyldutengslum er háttað.
Skriflegar upplýsingar þurfa að berast frá umsækjanda.
Kröfur til skjala
Útskýringar á kröfum sem gerðar eru til skjala sem skila þarf inn með umsókn.
Frumrit er aðaleintak skjals, það er fyrsta rit og ekki afrit.
Gerð er krafa um að frumrit erlendra skjala sem lögð eru fram með umsókn séu lögformlega staðfest. Frumrit íslenskra skjala þurfa ekki að vera staðfest.
Tvær viðurkenndar leiðir eru til þess að lögformlega staðfesta skjöl: apostille vottun og keðjustimplun. Hvor leiðin er farin ræðst af útgáfulandi skjals.
Apostille vottun
Apostille vottun er gerð í útgáfulandi vottorðs.
Til að fá apostille vottun þarf umsækjandi að fara með frumrit skjals til þess stjórnvalds sem veitir slíka vottun í útgáfulandi skjalsins áður en hann leggur inn umsókn.
Upplýsingar um hvaða lönd eru aðilar að Apostille samningnum.
Keðjustimplun
Keðjustimplun (einnig kallað tvöföld staðfesting) er notuð í löndum þar sem ekki er hægt að fá apostille vottun.
Það þýðir að vottorð þarf tvo stimpla til að geta talist lögformlega staðfest, annan frá útgáfulandi skjalsins og hinn frá sendiskrifstofu Íslands gagnvart útgáfulandinu.
Til að fá slíka stimplun þarf fyrst að senda frumskjalið til utanríkisráðuneytis þess lands sem gaf út skjalið. Viðkomandi ráðuneyti staðfestir skjalið og sendir það áfram til sendiráðs Íslands gagnvart útgáfulandinu eða umsækjandi sér sjálfur um að koma skjalinu til sendiráðsins. Sendiráð Íslands gagnvart útgáfulandinu staðfestir að lokum að fyrri stimpillinn sé réttur.
Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands
Með staðfestu afriti er átt við að afrit sé tekið af frumriti skjals og það staðfest af stjórnvaldi sem hefur heimild til að staðfesta skjöl.
Opinbert stjórnvald í útgáfulandi (útgáfuaðili eða annar opinber aðili) getur tekið staðfest afrit af skjölum.
Mikilvægt er að frumrit skjals hafi fengið lögformlega staðfestingu áður en tekið er af því staðfest afrit.
Ef erlent skjal er gefið út á öðru tungumáli en ensku eða Norðurlandamáli, þarf einnig að leggja fram þýðingu þess.
Þýðing þarf að vera í frumriti eða staðfestu afriti.
Þýðing þarf að vera gerð af löggiltum skjalaþýðanda.
Þýðing má vera á íslensku, ensku eða Norðulandamáli.
Ef þýðing er unnin af skjalaþýðanda sem ekki hefur fengið löggildingu á Íslandi þarf frumrit þýðingarinnar að vera lögformlega staðfest.
Listi yfir löggilta skjalaþýðendur
Félag löggiltra dómtúlka og skjalaþýðenda
Í sumum tilvikum þarf umsækjandi að leggja fram vottaða yfirlýsingu. Gerð er krafa um að yfirlýsingar séu lagðar fram í frumriti og séu dagsettar og undirritaðar af þeim aðila sem gefur yfirlýsinguna. Þá þarf yfirlýsingin að vera vottuð af opinberum aðila, til dæmis af lögbókanda (notarius publicus).
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun