Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Varnir gegn landbroti – umsókn um styrk

Varnir gegn landbroti

Nánar um varnir gegn landbroti

Varnir gegn landbroti

Land og skógur hefur það hlutverk samkvæmt lögum um varnir gegn landbroti að draga úr eða koma í veg fyrir landbrot og annað tjón á landi, landkostum eða mannvirkjum með því að vinna að vörnum gegn landbroti af völdum fallvatna.

Aðgerðir til varnar landbroti

Aðgerðir til að hefta landbrot af völdum vatnsfalla geta verið fólgnar í bakkavörnum, gerð varnargarða eða öðrum aðgerðum sem fela í sér lagfæringu á rennsli áa eða árfarvegum.

  • Með bakkavörnum er átt við að grjót- eða malarfylling er sett með fram árbökkum til þess að stöðva landbrot.

  • Slíkar aðgerðir hafa gjarnan minni áhrif á rennsli áa en varnargarðar og eru minna áberandi í umhverfinu.

  • Varnargarðar geta á hinn bóginn verið nauðsynlegir þar sem framburður áa hleðst upp þannig að árnar flæmast út fyrir farvegi sína.

Framkvæmd varnaraðgerða

Land og skógur hefur náið og gott samstarf við Vegagerðina um framkvæmd varna gegn landbroti.

  • Ef varnaraðgerðum er ætlað að verja bæði gróðurlendi og samgöngumannvirki hafa stofnanirnar tvær skipt með sér kostnaði.

  • Vegagerðin hefur aftur á móti umsjón með aðgerðum til að verja vegi, brýr og önnur samgöngumannvirki á landi.

  • Þegar Land og skógur hyggst ráðast í vandasamar eða umfangsmiklar fyrirhleðsluframkvæmdir annast Vegagerðin verkfræðilegan undirbúning, útboð og eftirlit.

  • Siglingastofnun annast gerð varnargarða gegn ágangi sjávar.

Helstu verkefni

Undanfarin ár hefur verið varið 70-80 milljónum króna á fjárlögum til fyrirhleðsluverkefna á landinu.

  • Aðkallandi verkefni eru við vatnsföll víða um land auk þess sem sinnt er viðhaldi eldri varnargarða.

  • Ekki er unnt að sinna nema hluta þeirra beiðna sem berast árlega um aðgerðir.

  • Við forgangsröðun verkefna er lögð áhersla á varnaraðgerðir þar sem ræktuðu landi, byggingum eða öðrum mannvirkjum stafar hætta af ágangi vatna.

Árlega er unnið að fyrirhleðsluaðgerðum á 40-50 stöðum á landinu. Stærstu verkefnin eru við Markarfljót í Rangárvallasýslu, Héraðsvötn í Skagafirði, Skaftá, Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá í Lóni.

Varnir gegn landbroti

Þjónustuaðili

Land og skógur