Almennt
Með endurheimt votlendis er leitast við að koma vatnsbúskap svæðis sem næst því sem áður var. Í kjölfarið má svo gera ráð fyrir að lífríki þróist til fyrra horfs og að jöfnuður gróðurhúsalofttegunda verði jákvæður.
Votlendi geymir verulegan hluta kolefnisforða jarðar. Votlendissvæði eru mikilvæg búsvæði plantna, fugla, fiska og smádýra, bæta vatnsbúskap jarðar og geta jafnað vatnsrennsli og þannig minnkað hættu á flóðum, sveiflum í vatnsrennsli og jarðvegsrofi.
Endurheimt votlendis getur aukið útivistargildi svæða, til dæmis aukið möguleika til fuglaskoðunar og bætt skilyrði til veiða.
Fylgigögn
Með umsókn þarf að fylgja:
Heiti jarðar og landeignarnúmer.
Upplýsingar um eiganda jarðar.
Loftmynd af jörðinni.
Þegar umsókn er samþykkt
Frekari upplýsingar
Verkefnisstjóri endurheimtar votlendis er Iðunn Hauksdóttir, héraðsfulltrúi á Vesturlandi og Vestfjörðum og verkefnisstjóri endurheimtar votlendis. Hún framfylgir stefnu Lands og skógar í landgræðslu og gróður- og jarðvegsvernd, gerir áætlanir og hefur umsjón og eftirlit með landgræðsluverkefnum, aflar upplýsinga, vaktar ástand gróðurs og jarðvegs og fylgist með að lögum um viðkomandi verkefni sé framfylgt. Þá skráir hún landgræðsluaðgerðir og mat á árangri, veitir fræðslu, ráðgjöf og miðlar upplýsingum um verkefni.
Sunna Áskelsdóttir sér um rannsókna- og þróunarstarf tengt votlendi og endurheimt þess á vegum Lands og skógar og um vöktun votlendisvistkerfa með áherslu á losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda. Þá hefur hún umsjón með þróun aðferða til að meta árangur af endurheimt votlendis, vinnur að þróun vöktunarverkefnis til að afla nauðsynlegra gagna um losun og bindingu votlendis fyrir loftlagsbókhald Íslands og hefur umsjón með framkvæmd verkefnisins.
Þjónustuaðili
Land og skógur