Fara beint í efnið

Tilkynningarskylda færanlegrar starfsemi

Tilkynna starfsemi

Rekstraraðili færanlegrar starfsemi, þ.m.t. jarðborar, færanlegar malbikunarstöðvar og steypustöðvar, sem er starfsleyfis- eða skráningarskyld samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, skal tilkynna eftirlitsaðila um fyrirhugað verk að jafnaði eigi síðar en fjórum vikum fyrir áætlað upphaf verks.

Í tilkynningu skal koma fram:

  1. Nafn, kennitala, heimilisfang og tölvupóstfang rekstraraðila.

  2. Nafn, símanúmer og tölvupóstfang tengiliðs verks.

  3. Heiti og/eða auðkenni tækis sem notað er við framkvæmdina.

  4. Tegund verks.

  5. Staðsetning verks (GPS hnit og lýsing) og eftir atvikum yfirlitsmynd.

  6. Upphaf verks og áætluð verklok.

  7. Áætlað magn olíuefna sem notuð verða við verkið.

  8. Listi yfir önnur efni sem notuð verða við verkið.

  9. Áhættumat og viðbragðsáætlun vegna mengunaróhappa.

  10. Áætlun um meðhöndlun úrgangs þar sem fram koma meðal annars upplýsingar um tegund úrgangs, mögulega endurnotkun innan framkvæmdasvæðis eða annars staðar og móttökuaðila þess úrgangs sem ekki er mögulegt að endurnota.

Tilkynna starfsemi