Fara beint í efnið

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi.

Veiting styrkja fer fram samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.

Umsóknarfrestur er til 15. október 2026 kl. 15:00.

Styrkit til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi.

Hefurðu þegar sótt um og þarft að bæta við gögnum eða skoða stöðu? Skoða umsókn.

Styrkir til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við gististaði á Íslandi. Markmið átaksins er að fjölga stöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðslu rafbíla og styðja þannig við orkuskipti í ferðaþjónustu og loftslagsmarkmið stjórnvalda.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að:

  • Fjölga gististöðum þar sem gestir hafa aðgang að hleðsluinnviðum fyrir rafbíla.

  • Styðja við rafvæðingu bílaleiguflotans og hvetja ferðamenn til að velja rafbíla fremur en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti.

  • Stuðla að þéttara neti og tryggari hleðsluaðstöðu við gististaði um land allt.

Hverjir geta sótt um

  • Umsækjandi skal vera lögaðili. Tvenns konar aðilar geta sótt um:

  • Rekstrarleyfishafi gististaðar af tegund a (hótel) eða b (stærra gistiheimili) samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, með gilt rekstrarleyfi.

  • Rekstraraðili hleðslustöðva sem sækir um í samvinnu við slíkan gististað. Þá skal samstarfssamningur liggja fyrir.

  • Einstaklingar, A-hluta ríkisaðilar og lögaðilar í vanskilum við ríkissjóð geta ekki sótt um. Sjá nánar í handbók.

Heildarfjárhæð til úthlutunar

  • Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 50 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

  • Styrkhlutfall er allt að 33% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts.

  • Hámarksfjárhæð styrks á hvern gististað: 1 m.kr.

  • Ekkert lágmark er á styrkupphæð.

  • Mótframlag umsækjanda skal vera að lágmarki 67% af styrkhæfum kostnaði.

Helstu skilyrði verkefna

  • Verkefnið er við gististað af tegund a eða b samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 sem rekinn er með gilt rekstrarleyfi.

  • Sé umsækjandi rekstraraðili hleðslustöðva liggur fyrir samstarfssamningur við rekstrarleyfishafa gististaðarins.

  • Verkefnið felur í sér uppsetningu að lágmarki tveggja nýrra hleðslustöðva (2x 22 kW).

  • Eingöngu eru styrkt ný verkefni. Uppsetning hleðslustöðvanna má ekki vera hafin þegar sótt er um.

  • Hleðslustöðvarnar skulu vera aðgengilegar gestum gististaðarins.

  • Búnaður skal uppfylla viðeigandi öryggis- og CE-kröfur sem gilda á EES-svæðinu.

  • Vinna við raflagnir og tengingar skal unnin af löggiltum rafverktaka og vera í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um hleðslu rafbíla og raflagnir.

  • Styrkþegi skuldbindur sig til að reka hleðslustöðvarnar í að lágmarki fimm ár frá gangsetningu.

  • Styrkur greiðist í einni greiðslu eftir að hleðslustöðvarnar eru komnar í rekstur og lokaskýrsla hefur verið samþykkt.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 1. júlí 2026 og lokafrestur er til 15. október 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi á orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað“ á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is