Fara beint í efnið

Styrkir til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til fjárfestinga í orkusparandi búnaði í gróðurhúsum.

Veiting styrkja fer fram samkvæmt reglugerð nr. 1090/2026 um Loftslags- og orkusjóð.

Umsóknarfrestur er til 9. desember 2026 kl. 15:00.

Athugið að opnað verður fyrir umsóknir 9. nóvember 2026.

Styrkir til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum

Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til fjárfestinga í orkusparandi búnaði í gróðurhúsum, það er LED-ljósabúnaði, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum. Markmið átaksins er að auka orkunýtni og stuðla að orkusparnaði hjá rekstraraðilum gróðurhúsa, lækka orkukostnað þeirra og losa raforku inn á kerfið.

Markmið

Styrkjunum er ætlað að:

  • Draga úr raforkunotkun og annarri orkunotkun í gróðurhúsum.

  • Auka rekstrarhagkvæmni, tæknivæðingu og samkeppnishæfni ylræktar.

  • Styðja verkefni sem nýtast öðrum rekstraraðilum gróðurhúsa sem fyrirmynd.

Hverjir geta sótt um

Umsækjandi skal vera lögaðili sem rekur gróðurhús á Íslandi og ræktar þar plöntur til sölu, svo sem matjurtir, ber, blóm, pottaplöntur eða skógarplöntur. Einstaklingar sem reka garðyrkjustöð á eigin kennitölu geta einnig sótt um ef þeir eru beingreiðsluþegar. Ræktun í öðrum tilgangi, t.d. vegna ferðaþjónustu, líftækniframleiðslu eða rannsókna, er ekki styrkhæf. A-hluta ríkisaðilar og aðilar í vanskilum við ríkissjóð geta ekki sótt um.

Styrkjum er úthlutað til forgangshópa í þessari röð, og innan hvers hóps eftir einkunn:

  1. Beingreiðsluþegar sem hafa ekki áður hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði vegna orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum árin 2025 og 2026.

  2. Beingreiðsluþegar sem hafa áður hlotið styrk úr Loftslags- og orkusjóði vegna orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum árin 2025 eða 2026.

  3. Aðrir rekstraraðilar gróðurhúsa sem rækta plöntur til sölu.

Beingreiðsluþegar eru framleiðendur sem nutu beingreiðslu vegna raforku til lýsingar á árinu 2026 samkvæmt reglugerð nr. 1273/2020 um stuðning við garðyrkju. Sjá nánar í handbók.

Heildarfjárhæð til úthlutunar

Heildarfjárhæð til úthlutunar er allt að 150 m.kr.

Styrkhlutfall og hámark

  • Styrkhlutfall er allt að 40% af styrkhæfum kostnaði án virðisaukaskatts.

  • Styrkhæfur kostnaður er kaupverð orkusparandi búnaðar, kostnaður vegna flutnings búnaðar og efni og vinna við uppsetningu hans. Í nýbyggingum og stækkunum gróðurhúsa er eingöngu búnaðurinn sjálfur styrktur, þ.e. kaupverð hans og flutningskostnaður en ekki uppsetning.

  • Hámarksfjárhæð styrks er 20 m.kr. á hvern umsækjanda.

  • Mótframlag umsækjanda skal vera að lágmarki 60% af styrkhæfum kostnaði.

Helstu skilyrði verkefna

  • Verkefnið felur í sér fjárfestingu í nýjum LED-ljósabúnaði, tölvu- og stýribúnaði og/eða gardínukerfum, annað hvort í gróðurhúsi sem er í rekstri eða í nýbyggingu eða stækkun gróðurhúss.

  • Eingöngu eru styrktar framkvæmdir sem ekki eru hafnar. Kaup og uppsetning búnaðarins mega ekki vera hafin þegar auglýsing þessi er birt, og bindandi pöntun á búnaði telst upphaf verkefnis. Umsækjandi sem hefur verkefnið eftir birtingu auglýsingar gerir það á eigin ábyrgð.

  • Áætlaður orkusparnaður skal fylgja með umsókn og er reiknaður í kWst á ári.

  • Styrkþegi skuldbindur sig til að hafa búnaðinn í notkun í að lágmarki fimm ár frá því hann er tekinn í notkun.

  • Styrkur greiðist í allt að þremur hlutum: að hámarki tveimur framvindugreiðslum á verktíma og lokagreiðslu þegar verkefni er lokið og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Hver greiðsla miðast við útlagðan kostnað sem styrkþegi sýnir fram á með reikningum og staðfestingum á greiðslu. Samanlagðar framvindugreiðslur nema að hámarki 70% af styrkfjárhæð.

Umsóknarfrestur

Opnað verður fyrir umsóknir 9. nóvember 2026 og lokafrestur er til 9. desember 2026 kl. 15:00. Umsóknir skulu berast í gegnum rafrænt umsóknarkerfi sjóðsins www.orkusjodur.is.

Nánari upplýsingar

Nánari lýsing á umsóknarferli, kröfum, fylgigögnum og matsferli er í handbók sem fylgir þessari auglýsingu. Svör við almennum fyrirspurnum verða birt í „Spurt og svarað“ á vef sjóðsins. Öðrum spurningum má beina til orkusjodur@uos.is.