Styrkir til nýsköpunar í jarðvarmanýtingu
Loftslags- og orkusjóður auglýsir 600 milljónir króna í styrki til nýsköpunar í jarðvarmanýtingu.
Veiting styrkja fer fram samkvæmt reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2025.
Styrkhæfi verkefna og áherslur:
Styrkir verða veittir til orkufyrirtækja og annarra fyrirtækja sem nýta jarðvarmaauðlindina. Áhersla skal fyrst og fremst lögð á að styrkja verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:
Ný tækni til raforkuframleiðslu úr jarðvarma
Verkefni á sviði djúpborunar, Enhanced Geothermal Systems (EGS), raforkuframleiðslu úr lágvarma, nýrrar bortækni og fleira.
Fjölnýting jarðhita
Verkefni sem auka verðmætasköpun með beinni eða óbeinni fjölnýtingu jarðhita, til dæmis með nýjum framleiðsluferlum eða notkunarformum, sérstaklega þar sem loftslagsáhrif eru jákvæð og verkefni hafa ekki áður notið stuðnings úr öðrum opinberum sjóðum.
Nýting jarðhita til húshitunar
Nýjar aðferðir við nýtingu jarðhita, meðal annars með varmadælum, aukinni nýtni eða hagkvæmni, og uppbyggingu sem dregur úr rafhitunarkostnaði og styður við fjölgun notenda. Almennar boranir eða hefðbundin uppbygging dreifikerfa teljast ekki styrkhæfar.
Við mat á umsóknum skal meðal annars horft til þjóðhagslegrar hagkvæmni, byggðasjónarmiða og áhrifa á nærsvæði, auk gæða gagna og undirbúnings.
Styrkhlutföll, styrkfjárhæðir og fleira:
Styrkupphæð fyrir hvert verkefni getur numið allt að þriðjungi af heildarkostnaði, gegn mótframlagi umsækjanda. Umsækjendur skulu leggja fram mótframlag sem nemur að minnsta kosti tveimur þriðju hluta kostnaðar. Skipting greiðslna skal vera eftirfarandi:
Framvindugreiðsla (75%) greiðist samkvæmt samningi og framlagningu gagna.
Lokagreiðsla (25%) er greidd þegar lokaskýrsla hefur verið samþykkt.
Umsóknir:
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, þátttakendur og samstarfsaðila.
Nafn, kennitala, netfang og símanúmer tengiliðar við sjóðinn.
Lýsing á verkefninu og því hvernig það samræmist markmiðum og áherslum Loftslags- og orkusjóðs.
Lýsing á þekkingu á jarðhita viðkomandi svæðis, með tilvísun í fyrri rannsóknir eftir því sem við á.
Tíma- og verkáætlun.
Sundurliðuð fjárhagsáætlun verkefnis og upplýsingar um fjármögnun.
Lýsing á hagkvæmni verkefnis, að teknu tilliti til síðari áfanga.
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun