Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausar til umsóknar stöður lögreglumanna í löggæsludeild embættisins, með aðalstarfsstöð á Húsavík.
Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar til sex mánaða frá og með 1. nóvember 2026, með fimm ára skipun í huga að liðnum reynslutíma.
Framtíðarsýn embættis Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra er framsækið embætti fyrir vaxandi samfélag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar, en auk þess:
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp.
Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol
Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
Lausnamiðað og jákvætt viðhorf
Frumkvæði og drifkraftur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Þó er heimilt að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar, sbr. 5. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1990.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfshlutfall er 100% og er vaktavinna með bakvaktaskyldu, þannig að aðsetur á Húsavík á meðan á vaktatörn stendur er skilyrði.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Embættið leggur áherslu á jafnrétti og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Upplýsingar um starf
Starf
Lögreglumenn - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.09.2026
Umsóknarfrestur
28.09.2026