
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmanneskja á heyrnarsviði - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Aðstoðarmanneskja á heyrnarsviði - Heyrnar og talmeinastöð HH
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða aðstoðarmanneskju til starfa á heyrnarsvið Heyrnar og talmeinastöðvar (HT). Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Aðstoðarmaður vinnur náið með heyrnarfræðingum við að þjónusta skjólstæðinga heyrnarsviðs, ásamt því að beina skjólstæðingum í rétta og tímanlega þjónustu. Viðkomandi hlýtur sérþjálfun til að vinna ákveðin störf undir stjórn og á ábyrgð heyrnarfræðinga og heyrnarráðgjafa HT. Starfinu fylgja fjölbreytt verkefni og tækifæri á að þróast í starfi.
Heyrnar og talmeinastöð HH er miðstöð þekkingar í heyrnar og talmeinum á Íslandi sem veitir þjónustu á landsvísu. Hlutverk HT er að þjóna þeim sem eru heyrnarskertir, heyrnarlausir eða með mál og talmein.
Við leitum af drífandi einstaklingi með mikla þjónustulund í móttöku- og þjónustuteymi HT, viðkomandi ber ábyrgð á að tryggja framúrskarandi þjónustu og skapa jákvæða upplifun viðskiptavina.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með pöntun og móttöku rekstrarvöru og tækja fyrir heyrnarsvið
Undirbúningur heimsókna viðskiptavina
Fræðsla og kynningarstarf til almennings
Umsjón með fjarþjónustu
Umsjón með þjónustu við öldrunarstofnanir og aðstoða við vinnu heyrnarfrærðinga
Kynning hjálpartækja og aðstoð við notkun þeirra, pörun heyrnartækja við farsíma o.fl.
Eftirfylgd og stuðningur í kjölfar þess að einstaklingur hefur fengið ný heyrnar- og / eða hjálpartæki
Aðstoð og afleysing í móttöku
Aðstoð við viðgerðarþjónustu, tæki send til birgja til viðgerða og umsjón með afhendingu að lokinni viðgerð.
Hæfniskröfur
Nám sem nýtist í starfi, t.d. heilbrigðisvísindum
Reynsla af Sögukerfi kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Mjög góð skipulagshæfni, sjálfstæði og frumkvæði
Mjög góð samskiptafærni og hæfni til samstarfs við ólíka fagaðila
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð
Góð almenn enskukunnátta er æskileg
Góð færni í a.m.k. einu norðurlandamáli æskilegt (Dan, Sæn, Nor).
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pálmey Harðardóttir
Heilsugæsluritari
Tölvupóstur: palmey.hardardottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-6500

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmanneskja á heyrnarsviði - Heyrnar og talmeinastöð HH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
25.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026