Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í opinberum innkaupum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026

Sérfræðingur í opinberum innkaupum

Hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum (FSRE) ráða opinber innkaup miklu um hvernig fjármunum ríkisins er varið í aðstöðu fyrir heilbrigðisþjónustu, menntun, löggæslu, menningu og náttúruvernd um allt land. Nú leitum við að lausnamiðuðum, nákvæmum og framsæknum sérfræðingi með þekkingu og áhuga á opinberum innkaupum í útboðsteymi okkar.

Sem sérfræðingur í opinberum innkaupum veitir þú ráðgjöf og tekur þátt í útboðsmálum vegna framkvæmdaverkefna FSRE, allt frá vali á innkaupaleið og gerð útboðsgagna til mats á tilboðum og undirbúnings samningsgerðar. Þú tilheyrir útboðsteymi FSRE, sem er hluti af þjónustusviði og vinnur í nánu samstarfi við önnur svið stofnunarinnar að verkefnum í umsjón FSRE. Umfang verkefna spannar um 20 milljarða króna á ári og því skiptir fagmennska í innkaupum miklu máli.

Þú færð jafnframt tækifæri til að móta framtíð innkaupamála hjá FSRE, meðal annars með því að einfalda verklag og nýta sjálfvirknivæðingu og gervigreind í innkaupaferlinu. Þetta er tækifæri fyrir einstakling sem hefur góða skipulagshæfni, á auðvelt með samskipti og hefur brennandi áhuga á innkaupum og skilvirkum ferlum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með innkaupum í samræmi við lög og reglur um opinber innkaup

  • Ráðgjöf tengd útboðsmálum

  • Faglegur stuðningur og ráðgjöf þvert á stofnunina

  • Gerð útboðsgagna og eftirfylgni innkaupaferla

  • Mat á innsendum tilboðum og undirbúningur samningsgerðar

  • Framsetning gagna vegna ákvarðanatöku um framgang verkefna

  • Þátttaka í framþróun innkaupamála og almennum umbótaverkefnum hjá stofnuninni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og rík hæfni í teymisvinnu

  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð

  • Nákvæmni og geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis

  • Góð tök á Office 365 (t.d. Word, Excel og PowerPoint)

  • Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti

Eftirfarandi telst til kosta

  • Reynsla og þekking af innkaupum og útboðsmálum

  • Reynsla af verkefnastjórnun

  • Reynsla og þekking af framkvæmdaverkefnum

  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu

  • Þekking á sjálfvirknivæðingu og nýtingu gervigreindar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Hvað við bjóðum

  • Verkefnamiðað vinnuumhverfi og sveigjanlegan vinnutíma

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem snerta flest svið samfélagsins

  • Stuðning við þekkingaröflun og starfsþróun, meðal annars aðgang að fjölbreyttum fræðsluveitum og alþjóðlegu tengslaneti

  • Heilsustyrk og samgöngustyrk

  • Hádegisþjónustu Maul

  • Öflugt starfsmannafélag

  • Fjölskylduvænan vinnustað þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og góða vinnustaðamenningu

Um FSRE

FSRE annast fasteignir og jarðir ríkisins, öflun húsnæðis og stýrir framkvæmdum við breytingar, endurbætur og nýbyggingar, með það að leiðarljósi að afla góðs en hagkvæms húsnæðis í allra þágu. Stofnunin heldur utan um stærsta fasteignasafn landsins, 530 þúsund m² húsnæði í 380 eignum auk um 300 jarða og landsvæða. Einnig hefur FSRE umsjón með uppbyggingu ofanflóðavarna og náttúruinnviða um land allt. Hjá FSRE starfa um 70 sérfræðingar með breiða þekkingu á sviði fasteignaumsýslu, framkvæmda og eignastýringar. Við vinnum með gildin FRAMSÝNI - FAGMENNSKA - SAMVINNA að leiðarljósi.

Umsókn

Um fullt starf er að ræða. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga Hanna Guðmundsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: inga.gudmundsdottir@fsre.is

Aldís Stefánsdóttir

Framkvæmdastjóri þjónustusviðs

Tölvupóstur: aldis.stefansdottir@fsre.is

Þjónustuaðili

FSRE

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í opinberum innkaupum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026